Sunday, January 15, 2012

John Greek

John Greek var meðlimur hljómsveitarinnar The Wailers frá Tacoma, Washington, BNA á árunum 1957-1960. Sú hljómsveit átti eftir að hafa djúp áhrif á bandaríska rokksögu. En Wailers var fyrsta rokkgrúppan til að covera hið tímalausa "Louie louie" eftir Richard Berry sem gaf það út upprunalega 1955. The Wailers gáfu út sína útgáfu á laginu árið 1960 (þremur árum áður en The Kingsmen gerðu lagið heimsfrægt) en stuttu eftir það hættir John Greek í hljómsveitinni. 



Hann átti þó marga slagara með hljómsveitinni og má þar nefna "Tall Cool One" sem var það fyrsta sem nokkurntíman kom út með hljómsveitinni. John Greek hafði mikil áhrif ásamt Wailers á rokksprengingu Bandaríkjanna en hljómsveitir á borð við The Sonics, The Kingsmen og The Ventures hafa tekið lög úr smíðum hans.



Eftir að John Greek er hætti í The Wailers fluttist hann til Hollywood, Los Angeles. Hann vann sem upptökustjóri og þótti mjög lúnkinn. Hann spilaði líka sem "session" gítarleikari hjá Fifth Dimension og einhverntíman seinna með The Seeds. En meðan Greek dvaldist í Hollywood var hann m.a annars fenginn til að sjá um tónlistina fyrir "gervi" hljómsveitina The Scared Cows sem kom í einum þætti af Get Smart.








Greek var hinsvegar í öðru "allvöru" verkefni um þessar mundir. Það bar heitið The Beautiful Daze. The Beautiful Daze gaf aðeins út eina 7" tommu á sínum ferli, City - Jungle árið 1967. Mætti segja að ferill Greeks hafi smátt og smátt dalað út eftir þessa útgáfu en ef ekki væri fyrir enduruppgvatanir 9 áratugarins á "bílskúrsrokki" sjöunda áratugarins værum við ekki að ræða þennan mikla snilling yfir höfuð. Það hefur alltaf verið mikið "mistery" í kringum þessa smáskífu. Hún birtist fyrst fyrir augum allmennings á safnplötunni "Acid Dreams" á níunda áratugnum og hefur hún ratað á fullt af öðrum safnplötum. Sándið á upptökunni er mjög sérstakt og mætti kalla það "shogaze" síns tíma en það sem einkennir lagið er þessi feiti mikli FUZZ sem umkringir allt og mjög bergmálaðar bakraddir , jafnvel á okkar tíma. Tímalaus snilld og leiðinlegt að það vita ekki fleiri af þessari skífu.

John Greek dó árið 2006 í San Diego, 60 ára. Megi andi hans lifa með tónlistinni.

Hægt er að hlaða niður:
The Beautiful Daze - City Jungle
The Wailers- Wailers Wailers Everywhere/Out of Our Tree




- a

Þrjú Háinn. The Illusions - City of people



"my hairs too long, my heel’s too high
 if they want to laugh and stare
 go ahead coz I don’t care”

Ofbeldis popp frá fljótunum í Michigan. The Illusions eru fjögurra manna sveit frá St.Clair Shores sem lætur engann segja sér fyrir verkum. Þeir gáfu út eina 45 snúninga stuttskífu, árið 1966, hjá plötufyrirtækinu Michelle. Þetta lag er hrátt, hratt og hart sem ætti að vera lýsingin á öllu bílskúrsrokki frá þessum tíma.

Á meðan við erum stödd í Michigan þá læt ég fljóta með aðra snilld á kanó.
The Iguanas - Again and Again frá 1965.
Fyrsta bandið sem að krúttið Iggy Pop var í, hann trommar og syngur í þessu lagi og gerið það lista vel.
-J

Tuesday, September 14, 2010

Gene Clark - Vanmetinn Snillingur

Þegar Harold Ugene Clark fluttist til Los Angeles í kringum árið 1964, staðráðinn í að stofna rokkhljómsveit eftir að hafa heyrt í Bítlunum var fljótlega ljóst að hann hafði erft tónlistarsköpunnarhæfileika í vöggugjöf. Gene Clark stofnaði ásamt félaga sínum Roger McGuinn rokkgrúppunna The Byrds sem átti eftir að tröllríða öllu í BNA sérstaklega fyrir frumlegrar blöndunnar folk/kántrímúsíkar við rokkið.
Gene Clark átti ótal "hitta" meðal laga Byrds og fékk hann meiri pening en hinir upphaflega af því hann hafði samið flest lögin. Lög eins og I'll Feel A Whole Lot Better og I Knew I'd Want To gera hlustendum allveg ljóst að um er að ræða músíklegan
snilling með ódauðlegar melódíur sem hverfa aldrei.  
Hann er einnig talinn vera meginlagahöfundur og
melódíusmiður Eight Miles High
En Gene Clark drakk mikið og hataði að ferðast.
Sjúkleg flughræðsla vatt uppá sig við hina meðlimi
Byrds og yfirgaf hann hljómsveitina árið 1966.

Það er mikil synd að hann hafi ekki slegið meira í gegn
og að fólk þekki ekki til tónlistar hans sem hann gerði
eftir að hann hætti í Byrds. Plötur eins og Echoes og
The Fantastic Expedition Of Dillard & Clark innihalda hans bestu lög.
Hér mun ég koma með einhverjar af hans bestu plötum
og megið þið njóta vel.
-a

Gene Clark - Echoes [1967]

http://rapidshare.com/files/138306984/590_Gene_Clark_-_Echoes__1967_.rar

Dillard & Clark - The Fantastic Expedition of Dillard & Clark[1968]



















                                                                                    http://www.mediafire.com/?wlmxun90tdi

Gene Clark -White Light[1971]
http://www.mediafire.com/?zfnvo1ytizw

Heil Og Sæl!

Fónninn lýsir yfir íslenskum heimsyfirráðum í boðberun rótartónlistar af ýmsu tagi! Einblínt verður á gamaldags rokki og ról ásamt arrgrúa af sýrupoppi langt aftur um aldir eða minnsta kosti hálfrar aldar og rúmlega það. Fróðlegt og yfirvegað blogg en um leið skemmtiefni mikið sem hægt er að njóta góðs af. Lesið Fóninn af og til og verði ykkur af því. Verið sæl og margsinnisblessuð lömbin góð. A kveður